Bókleg Knapamerki haust 2026

Bókleg knapamerki verða kennd í október og nóvember (ef næg þátttaka fæst) og lýkur námskeiðunum með skriflegum prófum.
​Námskeiðið er opið öllum þeim er hafa áhuga á að ljúka bóklegu námi í knapamerkjunum.

​Knapamerkjabækurnar fást t.d. í Líflandi, Ástund og hjá Hólaskóla. Sum bókasöfn eiga einnig eintök (ATH! Nýjustu bækurnar eru allar gormabækur)

KM1 og KM2 verða kennd á mánudögum og miðvikudögum. Fyrsti bóklegi tíminn hjá KM1 og KM2 verða haldnir mánudaginn 12.okt.
KM3 og KM4 verða kennd á þriðjudögum og fimmtudögum. Fyrsti bóklegi tíminn hjá KM3 og KM4 verða haldnir þriðjudaginn 13.okt.
Kennt verður seinnipartinn og fram á kvöld. Nákvæmar tímasetningar verða sendar út þegar nær dregur, en gera má ráð fyrir að kennt verði ca. 17-20. T.d. KM1 17:00-18:30 og KM2 18:30-20:00.

Knapamerki 1: 8 bóklegir tímar (4 skipti) og próf Kr. 25.000.-
​Knapamerki 2: 8 bóklegir tímar (4 skipti) og próf kr. 25.000.-
​Knapamerki 3: 12 Bóklegir tímar (6 skipti) og próf kr. 29.500-
​Knapamerki 4: 14 bóklegir tímar (7 skipti) og próf kr. 37.500
Knapamerki 5: Áhugasamir sendi línu á ss(hja)sigrunsig.com

​Kennsla fer fram í kennslustofu Samskipahallarinnar í Spretti (2.hæð), mögulega einnig eitthvað kennt í fjarkennslu. Öll skrifleg próf fara fram í Samskipahöllinni í Spretti.

Sendar verða nánari upplýsingar á þátttakendur þegar nær dregur.
​Skráning er opin og lýkur föstudaginn 9. okt. Skráning fer fram á abler.io þar sem skráð er í hvert KM fyrir sig.
​Kennari: Sigrún Sig
Scroll to Top