Blue Lagoon – Slaktaumatölt

Næsta keppni í Blue Lagoon mótaröðinni verður haldin fimmtudaginn 9 april nk. Keppni hefst kl.17:00 í Samskipahöllinni í Spretti.

Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum.
Keppt verður í slaktaumatölti.

Vegna þess hversu vinsæl BLUE LAGOON mótaröðin er í ár verðum við að grípa til fjöldatakmarkana í skráningu
Eftirtaldir flokkar verða í boði í slaktaumatölti;
– Barnaflokkur T4 minna vanir-3 flokkur í sportfeng – max 20 keppendur
– Barnaflokkur: T4. Max 20 keppendur.
– Unglingaflokkur T4 minna vanir – 2 flokkur í sportfeng – max 20 keppendur
– Unglingaflokkur: T4. Max 20 keppendur.
– Ungmennaflokkur: T4. Max 20 keppendur.

6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.

Einungis er leyfirlegt að skrá 1 hest á hvern knapa á þessu móti

Blue Lagoon nefndin áskilur sér rétt á að sameina flokka ef ekki næst nægur fjöldi í einhverja flokka.
6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.

Skráning opnar 30.mars kl 12:00 og skráningu lýkur á miðnætti sunnudaginn 5. apríl
ATH! Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur.

Skráningargjöld eru 4500kr.

Minnum á tölvupóstinn okkar bl********@******ur.is ef einhverjar spurningar vakna.

Ráslistar og dagskrá verður birt þriðjudaginn 7.apríl hér á facebook síðu mótsins. Veitingasala verður opin í veislusalnum.
Í boði verður æfingatími í allri Samskipahöllinni mánudaginn 6 apríl milli 12-13

Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni fimmtudaginn 9. apríl nk

Scroll to Top