Skip to content

Blue Lagoon mótaröðin fjórgangur

Blue Lagoon mótaröðin hefst fimmtudaginn 15.febrúar kl.17:30 í Samskipahöllinni. Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum. Keppt verður í fjórgangi.

Eftirtaldir flokkar verða í boði;
Barnaflokkur (10-13ára): V5 (léttari fjórgangur) og V2
Unglingaflokkur (14-17ára): V2
Ungmennaflokkur (18-21árs): V2

Hér má nálgast reglur um íþróttakeppni:
https://www.lhhestar.is/…/-i-reglur-um-ithrottakeppni…

6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.

Skráning er opin og fer fram á sportfengur.com.
https://sportfengur.com/#/home

Skráningu lýkur á miðnætti mánudaginn 12.febrúar.
ATH! Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur.
Skráningargjöld eru 3500kr.
Ráslistar og dagskrá verður birt þriðjudaginn 13.febrúar hér á facebook síðu mótsins. Veitingasala verður opin í veislusalnum.

Í boði verður æfingatími í allri Samskipahöllinni sunnudaginn 11.febrúar kl.18:00-20:00.

Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni fimmtudaginn 15.febrúar nk. 

Sýna minna