Blue Lagoon mótaröðin hefst fimmtudaginn 13.febrúar kl.17:00 í Samskipahöllinni. Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum. Keppt verður í fjórgangi.
Eftirtaldir flokkar verða í boði;
Barnaflokkur (10-13ára), tveir flokkar í boði, minna vanir og meira vanir. Minna vanir keppa í V5 (léttari fjórgangur) og meira vanir keppa í V2.
Unglingaflokkur (14-17ára), tveir flokkar í boði, minna vanir og meira vanir. Minna vanir keppa í V5 (léttari fjórgangur) og meira vanir keppa í V2.
Ungmennaflokkur (18-21árs). Eingöngu einn flokkur í boði, V2.
Hér má nálgast reglur um íþróttakeppni:
https://www.lhhestar.is/…/-i-reglur-um-ithrottakeppni…
6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.
Knapar telja eingöngu til stiga í einum flokki.
Þeir knapar sem hafa keppt á stórmótum svo sem Landsmóti og- eða Íslandsmóti í sínum flokkum er bent á að skrá sig í V2.
ATH! Eingöngu eru 25 knapar í hverjum flokki, samtals 125 skráningar.
Við bendum á að knapar mega eingöngu skrá 2 hesta.
Skráning er opin og fer fram á www.sportfengur.com
Skráningu lýkur á miðnætti þriðjudaginn 11.febrúar.
ATH! Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur.
Skráningargjöld eru 4000kr.
Gaman að segja frá því að BLUE LAGOON mótaröðin verður í beinni útsendingu á EIÐFAXI TV, www.eidfaxitv.is, ókeypis í allan vetur og einnig á rásum Eiðfaxa á myndlykli Símans og myndlykli Vodafone.
Ráslistar og dagskrá verður birt miðvikudaginn 12.febrúar á facebook síðu mótsins – https://fb.me/e/4tIdSTDSV
Veitingasala verður opin í veislusalnum.
Í boði verður æfingatími í allri Samskipahöllinni sunnudaginn 9.febrúar kl.18:00-20:00.
Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni fimmtudaginn 13.febrúar nk.