Vinsæla BLUE LAGOON mótaröðin verður á sínum stað í vetur í Samskipahöllinni í Spretti.
Mótaröðin er ætluð börnum, unglingum og ungmennum alls staðar af landinu. Einnig verður boðið upp á einstaka keppni í pollaflokki þann 10.apríl. Í ár verður boðið upp á stigskipta flokka í unglingaflokki, minna og meira vanir, líkt og hefur verið undanfarin ár í barnaflokki. Eftir sem áður verður eingöngu einn flokkur í ungmennaflokki. Hámarksskráningafjöldi í hvern flokk er 25 knapar, ekki er leyfilegt að skrá fleiri en 2 hesta á hvern knapa.
Keppt verður á fimmtudögum. Húsið opnar kl.16:30 og keppni hefst að öllu jafna kl.17:00, nema annað verði tekið fram.
Keppniskvöldin eru eftirfarandi:
Fimmtudagurinn 13.febrúar – Fjórgangur
Fimmtudagurinn 6.mars – Fimmgangur
Fimmtudagurinn 27.mars gæðingakeppni og slaktaumatölt
Fimmtudaginn 10.apríl Tölt og pollaflokkur
Sex efstu knapar fara í úrslit hverju sinni en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.
Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum allra hestamannafélaga landsins.
Skráning mun fara fram í gegnum Sportfeng (www.sportfengur.com). Skráning opnar viku fyrir mót hverju sinni.
Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur.
Æfingatímar verða í boði í Samskipahöllinni eftirtalda sunnudaga:
sunnudagur 9.febrúar kl.18-20
sunnudagur 2.mars kl.18-20 (til vara kl.20-22)
sunnnudagur 23.mars kl.18-20
sunnudagur 7.apríl kl.19:00-21:00
Sem fyrr er það BLUE LAGOON sem styrkir mótaröðina og leggur til glæsilega farandgripi. Auk þess verða veglegir vinningar fyrir efstu sætin í hverjum flokki.
Við óskum eftir að þeir vinningshafar sem hafa hjá sér til varðveislu farandgripi BLUE LAGOON mótaraðarinnar skili inn farandgripum á fyrsta móti vetrarins, þann 13.febrúar.
Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni í vetur á BLUE LAGOON mótaröðinni.
Fyrir allar nánari upplýsingar er hægt að senda póst á [email protected]