Síðasta mótið í Blue Lagoon mótaröð Spretts verður haldið fimmtudaginn 11.apríl en þá verður keppt í gæðingakeppni innanhúss.
Eftirfarandi flokkar eru í boði, riðið verður heilt prógramm í forkeppni og einn inn á í einu:
Barnaflokkur (10-13 ára)
Unglingaflokkur (14-17 ára
Ungmennaflokkur (18-21árs)
Keppendur sýna:
Barnaflokkur (Fet, tölt eða brokk, stökk)
Unglingaflokkur (fet, hægt tölt, brokk, stökk og yfirferðargangur-annaðhvort tölt eða brokk)
Ungmennaflokkur (fet, hægt tölt, brokk, stökk og greitt tölt)
Nánari upplýsingar um reglur í gæðingakeppni á www.gdlh.is
Blue Lagoon nefndin áskilur sér rétt á að sameina flokka ef ekki næst nægur fjöldi í einhverja flokka.
Opnir tímar til að æfa sig verða á sunnudaginn, 7.apríl, í Samskipahöllinni kl.18:00-20:00
Skráningin fer fram í gegnum Sportfeng, www.sportfengur.com, fram til miðnættis þriðjudaginn 9.apríl. Skráningargjaldið er 3500kr.