Bíóferð ungra Sprettara

Æskulýðsnefnd Spretts býður ungum Spretturum í bíó!

ATH! Breytt dagsetning! Sunnudaginn 16. febrúar kl.15:20 ætlum við að skella okkur saman í Laugarásbíó og sjá hestamyndina “Sigurvilji” sem framleidd er af Áslaugu Pálsdóttur og Guðrúnu Hergils Valdimarsdóttur undir merkjum HEKLA FILMS

Æskulýðsnefnd Spretts býður öllum ungum Spretturum á sýninguna á þriðjudaginn.

Myndin fjallar um feril hins magnaða hestamanns og tamningameistara Sigurbjörns Bárðarsonar sem er einn verðlaunaðasti íþróttamaður íslenskrar íþróttasögu. Sigurvilji varpar ljósi á mikinn sigurvegara, dýravin og baráttumann sem hefur áratugum saman verið í fremstu röð af eigin verðleikum. Saga Sigurbjörns er stórbrotin og hefur veitt mörgum innblástur til að láta ekki deigan síga og gefast ekki upp þótt á móti blási.

Við höfum boðið fleiri ungum knöpum úr hestamannafélögunum í nágrenninu að slást í för með okkur og því gæti orðið mikið fjör næsta þriðjudag í Laugarásbíói.

Nauðsynlegt er fyrir unga Sprettara að skrá sig í gegnum tölvupóstinn ae************@sp********.is í síðasta lagi laugardaginn 15. febrúar kl.23:59.

Miðað er við ca. 8 ára aldur og uppúr – foreldrar eru velkomnir með (en greiða fyrir sinn miða sjálfir).

Sjáumst í Laugarásbíó á sunnudaginn!

Scroll to Top