Bikarkeppni LH – leitað eftir keppendum

Bikarkeppni LH fer fram 23. – 24. apríl næstkomandi í reiðhöllum hestamannafélaganna Fáks og Spretts. Fyrri daginn verður forkeppni á báðum stöðum en seinni daginn fara öll úrslit fara fram í nýrri glæsilegri reiðhöll Spretts. Keppt verður í T3, V2 og F2 í fullorðins-, og ungmenna- og unglingaflokki. Keppt verður eftir lögum og reglum LH. A-úrslit verða í öllum flokkum og einnig B-úrslit þar sem þátttakendur í forkeppni eru 20 eða fleiri. Sigurvegari hverrar greinar í hverjum flokki hlýtur titilinn Bikarmeistari 2014. Við leitum að 4 keppendum til að taka þátt í Tölti – T3, Fjórgang – V2 og Fimmgang – V2 í unglingaflokki, ungmennaflokki og fullorðinsflokki. Þeir sem hafa áhuga á að keppa eru beðnir um að senda okkur póst með upplýsingum um nafn, kennitölu, nafn á hesti og IS númer á mo*******@sp********.is í síðasta lagi á laugardaginn 19. apríl nk. Einnig er hægt að hringja í síma 825-3064 og 6952391 Mótanefndin mun svo velja knapa og hesta sem sækja um að keppa fyrir hönd félagsins

10246829 10203533922931465 6949307462137021019 n
Scroll to Top