Beitarhólf

Kæru Sprettarar.

Nú þegar sól hækkar á lofti er óskaplega gott að koma hrossunum okkar í útiveru, við erum svo lánsöm að hafa góð græn svæði til umráða hjá okkur hér í Spretti.Eitt þeirra er Básaskarð, þar sem hafa nú verið skipulögð rúmlega 30 beitarhólf.Hólf þessu eru ætluð til útiveru hrossa okkar yfir daginn. (Ekki er leifilegt að hafa hross í hólfunum yfir nótt)

Nýbúið er að bera á svæðið og þ.a.l. er óæskilegt að beita þar hrossum fyrr en í fyrsta lagi 16. maí.

Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að leigja sér beitarhólf í Básaskarði er bent hafa samband við Magnús framkvæmdarstjóra á tölvupósti ma******@sp********.is eða í síma 8933600

Óheimilt er að setja upp beitarhólf á svæðinu nema í samráði við framkvæmdastjóra.

Sumarkveðja
Framkvæmdastjóri

beitarholf
Scroll to Top