Auka – námskeið með Antoni Páli

Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við auka námskeiði með Antoni Páli.

Kennt verður sunnudaginn 2.janúar og mánudaginn 3.janúar milli kl.9:00 og 17:00.
Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.
Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim
og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.

Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum Íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska
og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög
árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni. Hann er án efa einn af allra bestu reiðkennurum landsins.

Kennslan fer fram í hólfi 3 í Samskipahöllinni.

Kennslan fer fram í einkatímum báða dagana, ca. 45-50mín.

Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.
Einungis eru í boði 8 pláss.
Verð fyrir unglinga/ungmenni er 30.000kr.

Skráning með tölvupósti á fr***********@********ar.is
Verð fyrir fullorðna er 35.500kr.

Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.

Scroll to Top