Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.
Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á sk******@ga*******.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögur að breytingu deiliskipulags hesthúsabyggðar að Kjóavöllum í samræmi við 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 1 mgr. 43. gr. sömu laga.
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögur að breytingu deiliskipulags hesthúsabyggðar að Kjóavöllum í samræmi við 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 1 mgr. 43. gr. sömu laga.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir breytingum á legu byggingareita ofan götu í Rjúpnahlíð og svæði fyrir heygeymslu. Tillagan gerir ekki ráð fyrir breytingum innan lögsögu Kópavogs.
Tillögurnar eru aðgengilegar hér á vef Garðabæjar, gardabaer.is og í þjónustuveri. Þeir sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 30. mars 2020, annað hvort á netfangið sk******@ga*******.is eða á bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.
Tækni-og umhverfissvið Garðabæjar