Árshátíð Spretts 2026

Kæru félagsmenn, nú er komið að því að hittast og gleðjast saman á árshátíð félagsins sem haldin verður laugardaginn 14. nóvember.
Húsið opnar með fordrykk kl. 18:00 og í kjölfarið boðið upp á steikarhlaðborð að hætti NOMY:

• Grillaðar nautalundir í trufflumarineringu
• Kryddjurtamarineruð kalkúnabringa
• Brasseraður lambabógur í lambasoðsgljáa með hvítlauk og blóðbergi
• Bakaðar kartöflur með ostagratínsósu, steinselju og sharlott
• Rauðrófusalat með fenníku og shiitake-sveppum
• Ristuð seljurót með eplum, kryddjurtum og graskersfræjum
• Kimchi-hrásalat með hvítkáli, gulrótum og vorlauk
• Grænt salat með bok choy, spínati, rucola og chili-vinaigrette
• Chimichurri
• Béarnaise
• Kremuð villisveppasósa
Eftirréttir
• Súkkulaðitruffla með ástaraldin-ganache og hnetupralíni
• Tanariva mjólkursúkkulaði-brownie með saltkaramelluganache og jarðarberi
• Möndlukökur með sítrónubúðing og hindberjum

Hjörvar Ágústsson mun stýra veislunni.

Miðaverð er 13.900 kr.

Panta þarf miða með því að senda tölvupóst á be******@******ur.is eigi síðar en þriðjudaginn 10. nóvember. Vinsamlega takið fram:
• Nafn og fjölda miða

Boð til sjálfboðaliða
Líkt og áður vill félagið þakka þeim sem lagt hafa hönd á plóg með sjálfboðastörfum, hvort sem er í nefndum eða við önnur mikilvæg verkefni og félagsstörf.
Formenn nefnda verða beðnir um að koma skilaboðum til sinna nefndarmanna, en til að tryggja að enginn gleymist biðjum við alla þá sem hafa unnið sjálfboðastarf fyrir félagið sem nemur að minnsta kosti einum vinnudegi eða einu móti, og hyggjast mæta á árshátíðina að upplýsa um það í tölvupósti þegar miðar eru pantaðir.

Við hlökkum til að eiga skemmtilegt kvöld með ykkur og fagna enn einu góðu ári í Spretti.

Bestu kveðjur
Stjórn Spretts

Scroll to Top