Áhugamannadeild Equsana hefst þann 3. febrúar 2022

Þá er komið að því! Ein áhugaverðasta keppnisröðin í hestaíþróttum á Íslandi hefst með keppni í fjórgangi fimmtudaginn 3. febrúar nk. kl. 19:00.

Ráslistar verða kynntir nánar þegar nær dregur mótið og allar skráningar hafa borist.

Góðar fréttir bárust í dag um að tilslakanir verða á sóttvörnum og er nú heimilt að hafa allt að 500 manns í rými. Hvetjum við því alla til að mæta á staðinn og horfa á þessa æsispennandi keppni.

Við biðjum þá sem mæta að huga vel að eftirfarandi skilyrðum:

– Allir gestir skulu vera sitjandi

– Milli ótengdra gesta þarf að viðhafa 1 metra í nálægðartakmökunum

– Allir gestir skulu nota andlitsgrímu

– Engin veitingarsala verður

– Meðan á hlé stendur eru allir gestir beðnir um að halda kyrru fyrir í sætum.

– Keppendur eru í sér sóttvarnarhólfi og ganga inn um sér inngang.

Áhugamannadeild Equsana hefur gert samkomulag við Alendis TV sem mun sýna beint frá keppninni í allan vetur. Hægt er að kaupa áskrift á heimasíðu Alendis: https://alendis.is/.

Dagskrá deildarinnar er:

– Fimmtudagur 3. febrúar: Fjórgangur

– Fimmtudagur 17. febrúar: Fimmgangur

– Fimmtudagur 3. mars: Slaktaumatölt

– Laugardagur 12. mars: Gæðingaskeið

– Fimmtudagur 17 mars: Tölt – lokamótið

 

Í ár munu 15 lið keppa í deildinni og hafa orðið töluverðar breytingar á liðskipan í flestum liðum en liðin hafa nú þegar verið kynnt á vefmiðlum og samfélagsmiðlum. Liðin sem keppa í ár eru lið:

– Voot

– Ganghesta

– Kingsland

– Trausta

– Heimahaga

– Límtré Vírnet

– Hvolpasveitarinnar

– Kidka

– Smiðjunnar Brugghús

– Vagna og þjónustu

– Tölthesta

– Fleyg/Hrísdalshesta

– Pure North

– Stjörnublikks

– Hrafnsholts

 

Spennan er mikil og æfingar löngu hafnar.

 

Minnum á facebook síðuna – Áhugamannadeild Equsana – og instagrammið.

 

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest, í Samskipahöllinni og á Alendis 3. febrúar nk.

equsana deild mynd
Scroll to Top