Skip to content

Áhugamannadeild Spretts 2024

Undirbúningur er á fullu fyrir tíunda keppnisárið í Áhugamannadeild Spretts, Samskipadeildinni.
Við stefnum á glæsileg mót árið 2024 og hafa dagsetningar löngu verið teknar frá í Samskipahöllinni.

Ný lið sem hafa áhuga á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 7.október nk. Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn fimm knapa liðsins.

Þau lið sem féllu úr deildinni 2023 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um í Áhugamannadeild Spretts 2024.

Riðin verða B-úrslit í öllum greinum nema gæðingaskeiði, sigurvegari B-úrslitanna ríður ekki líka A-úrslit

Umsóknir sendist á ahugamannad.spretts@gmail.com fyrir 7.október n.k.

Við minnum á reglur Áhugamannadeildar Spretts – liður 7 – um hvaða knapar hafa keppnisrétt í deildinni.

Hafa þeir knapar sem uppfylla önnur skilyrði 7. gr. reglanna keppnisrétt.

7. Keppendur í Áhugamannadeildinni – inngangsskilyrði
7.1. Knapar sem hafa töluverða reynslu af keppni en deildin er ekki byrjendadeild.
7.2. Knapar sem ekki hafa keppt í F1, V1, T1, T2 eða Meistaradeild síðastliðið 1 ár.
7.3 Öll gæðingakeppni, á öllum stigum, og kappreiðar er undanskilin þ.e.a.s. heimilt er að keppa í gæðingakeppni og kappreiðum án þess að það hafi áhrif á inngangskilyrði.
7.4 Þessar reglur gilda um öll mót, einnig innanhúsmót.
7.5 Knapar sem hafa ekki haft laun af tamningu eða þjálfun hesta seinustu 3 ár
7.6 Lágmarksaldur keppenda í Áhugamannadeild er 22 ár.
7.7 Stjórn Áhugamannadeildar Spretts hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylla inngangskilyrði


Dagsetningar móta 2024 hafa verið ákveðnar 


22.feb fjórgangur

14.mars slaktaumatölt

5.april fimmgangur

19.apríl tölt

20.apríl gæðingaskeið og lokahóf

Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Áhugamannadeild Spretts 2023

Hlökkum til að sjá ykkur í vetur.