Áhugamannadeild Spretts 2020

Equsana áhugamannadeildin hefst 6. febrúar!

Það styttist heldur betur í að Equsana áhugamannadeildin rúlli af stað þetta árið og er þetta hvorki meira né minna en sjötta keppnisár deildarinnar. Equsana verður áfram aðal styrktaraðili deildarinnar þriðja árið í röð og þökkum við þeim kærlega fyrir.

Fyrsta keppnisgrein er fjórgangur og verður haldin fimmtudaginn 6. febrúar í Samskipahöllinni í Spretti.

Dagsetningar móta 2020 eru eftirfarandi:

Fimmtudagur 6. febrúar fjórgangur

Fimmtudagur 20. febrúar fimmgangur

Fimmtudagur 5. mars slaktaumatölt og flugskeið gegnum höllina

Fimmtudagur 19. mars tölt – lokamótið

Á næstu dögum munum við kynna liðin og liðsmenn þeirra nánar.

Þau lið sem taka þátt eru:

Barki

Eldhestar

Hofsstaðir/Úrvalshestar/Votamýri

Stjörnublikk

Heimahagi

Hest.is

Vagnar og Þjónusta

Lið Hafdísar (nafn vantar)

Purenorth Recycling

Tolthestar

Lið Sverris

Lið Hraunhamar/Leiknir

Landvit

Voot-liðið

Geirland/Varmaland

Skuggi

equsana deild mynd
Scroll to Top