Umsóknarfrestur í Áhugamannadeild Spretts 2016.

Minnum á að umsóknarfrestur nýrra liða í Áhugamannadeild Spretts 2016 er til 20 júni.

Þau lið sem unnið hafa sér keppnisrétt verða að staðfesta við forsvarsmenn deildarinnar áframhaldandi þátttöku fyrir 20 júni 2015 ásamt liðskipan.

Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 20 júni.  Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn knapa liðsins.

Dregið verður úr umsóknum þann 1 júli í veislusal Spretts. Nánar auglýst síðar. 

Þau lið sem falla úr deildinni 2015 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um. Það eru fjögur sæti laust í Áhugamannadeild Spretts 2016. 

Umsóknir sendist á ah*************@sp********.is fyrir 20 júni n.k.

Við bendum á reglur Áhugamannadeildar Spretts – liður 7 – um hvaða knapar hafa keppnisrétt í deildinni.

7. Keppendur í Áhugamannadeildinni – inngangsskilyrði

7.1.   Knapar sem keppa í áhugamannaflokkum

7.2   Knapar sem hafa ekki laun af tamningu eða þjálfun hesta þ.e.a.s. hafi hestamennsku sem   aðal atvinnugrein

7.3.  Knapar sem ekki hafa keppt í meistaraflokki seinustu 3 ár  eða keppt t.d.  í Meistaradeildinni.  Undantekin er keppni á Íslandsmóti þar sem einungis er keppt í einum flokki, meistaraflokki þ.e. knapar í áhugamannaflokkum (sem keppa venjulega í 1 og 2 flokki) sem keppa á Íslandsmóti hafa keppnisrétt í Áhugamannadeildinni.

7.4.  Lágmarksaldur keppenda í Áhugamannadeild er 22 ár.

7.5.  Stjórn Áhugamannadeildar Spretts hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylla inngangskilyrði

Dagsetningar móta 2016 hafa verið ákveðnar.

Fimmtudagur 4 febrúar              :  4gangur

Fimmtudagur 18 febrúar            :  Trekk/smali – tímabraut

Fimmtudagur 3 mars                 :  5gangur

Fimmtudagur 17 mars               :  Slaktaumatölt

Fimmtudagur 31 mars               :  Tölt – lokamótið

Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Áhugamannadeild Spretts 2016.

Ahugamannadeild auglýsing 2016
Scroll to Top