Áhugaljósmyndarar í Spretti

Auglýst er eftir áhugasömum Spretturum um ljósmyndun. Verið er að leita eftir einstaklingum sem geta tekið að sér ljósmyndun á einhverjum af helstu viðburðum félagsins til dæmis á mótum, æskulýðsviðsviðburðum, áhugaverðum námskeiðum og einnig ljósmyndun af öðrum skemmtilegum hlutum sem eru að gerast í félaginu okkar. Því fleiri áhugasamir Sprettarar, því betra, þar sem gott er að hafa lista af fólki sem geta skipt viðburðum á milli sín.

Myndirnar verða settar inn á Facebook síðu félagsins og heimasíðuna okkar.

Áhugasamir vinsamlegast sendið póst á ve*******@sp********.is.

áhugaljósmyndarar
Scroll to Top