Æskulýðsbirkarinn til Spretts!

Sprettur hlaut í ár æskulýðsbikarinn sem LH veitir á hverju ári til þess hestamannafélags sem þykir hafa skarað framúr með sínu starfi að æskulýðsmálum. Valið byggist á starfi æskulýðsnefnda félaganna og þeim skýrslum sem bera starfinu vitni, en nefndirnar senda inn skýrslur sínar í október á hverju ári. 

Hestamannafélagið Sprettur er vel að þessari viðurkenningu komið. Starfið var fjölbreytt, mikið og ýmsar nýjungar krydduðu frábæra dagskrá æskulýðsnefndarinnar í félaginu. Æskulýðsmálin eru eitt það þýðingarmesta starf sem félögin hafa á sinni könnu, enda skilar öflug æskulýðsstarf öflugum hestamönnum.

Til hamingju Sprettarar!

Þessi félög hafa hlotið Æskulýðsbikar LH síðan byrjað var að veita hann árið 1996:

2015 – Sprettur
2014 – Fákur
2013 – Sindri
2012 – Sleipnir
2011 – Hörður
2010 – Logi
2009 – Dreyri
2008 – Þytur
2007 – Máni
2006 – Léttir
2005 – Andvari
2004 – Blær
2003 – Fákur
2002 – Smári
2001 – Máni
2000 – Freyfaxi
1999 – Hörður
1998 – Sörli
1997 – Gustur
1996 – Léttir

aeskulidsbikar
Scroll to Top