Æskan og hesturinn 2019

Hin árlega sýning Æskan og hesturinn verður haldin laugardaginn 4. maí næstkomandi í TM-Reiðhöllinni í Víðidal.
Þar koma fram efnilegustu hestamenn landsins og sýna afrakstur vetrarstarfsins.

Hópar ungra hestamanna frá hestamannafélögunum á höfuðborgarsvæðinu; Fáki, Herði, Mána, Spretti og Sörla sýna fjölbreytt atriði. Sýningin verður nánar auglýst síðar en það er um að gera að taka daginn frá.
Frítt er inn á sýninguna á meðan húsrúm leyfir.

Kolbeinn á 2 hrossum
Scroll to Top