Mánudaginn 18.mars nk. verður í boði æfingatími í Samskipahöllinni kl.21:00-22:30 með alþjóðlegum dómara fyrir unglinga og ungmenni í Spretti.
Æfingatímarnir eru ætlaðir unglingum og ungmennum að þessu sinni. Miðað er við 5-7mín á hvert prógramm. Fjöldi plássa er því takmarkaður.
Hægt er að mæta með ungan og efnilegan hest eða eldri og reyndari, alveg sama hvaða prógramm þið viljið sýna, einn inn á í einu. Halldór Gunnar Victorsson alþjóðlegur dómari mætir og gefur leiðbeiningar og einkunnir sem þið fáið svo sent í tölvupósti til ykkar. Við mælum einnig með að þið fáið einhvern til að taka upp sýningar ykkar á síma.
Nauðsynlegt er að skrá sig á [email protected] svo hægt sé að raða niður hestum og knöpum – skráningu lýkur á miðnætti sunnudaginn 17.mars.
Æfingatímar með dómara fyrir unglinga og ungmenni!