Aðrir vetrarleikar Spretts og Zo-on 2019

Aðrir vetrarleikar Spretts og Zo-on 2019 fara fram sunnudaginn 17. mars kl.13:00 og verða þeir haldir í Samskipahöllinni.
Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
Börn (10-13 ára)
Unglingar (14-17 ára)
Ungmenni (18-21 árs)
Konur II – minna keppnisvanar
Karlar II – minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (60 ára +)
Konur I – meira keppnisvanar
Karlar I – meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur)

Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka.
Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.

Vetrarleikarnir verða þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.

1.sæti gefur 10 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 4 stig
5.sæti gefur 2 stig
1 stig fæst fyrir allla þá sem taka þátt

Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr.

Skráning fer fram á milli 11 og 12 á mótsdag.

Vonumst til að sjá sem flesta sunnudaginn 17. mars.

Scroll to Top