Uppfært: Aðalfundur, kosningar og umboð

Aðalfundur Spretts hefst kl. 20:00 á morgun þriðjudag 24. mars.
Húsið opnar kl.19:15 og verður boðið upp á léttan mat fram að fundi.

Á fundinum verða kosningar til stjórnar og geta skuldlausir félagsmenn tekið þátt í kosningu. skv. 5.gr. laga félagsins. Kosið verður til formanns og í fjögur sæti til stjórnar, þar af eitt til eins árs.

Félagsmaður getur veitt öðrum félagsmanni umboð til þess að greiða atkvæði fyrir sína hönd en umboðsmaður má einungis mæta til fundar samkvæmt umboði eins félagsmanns og verða báðir aðilar að vera skuldlausir við félagið.

Félagsmenn sem greiða félagsgjöld eftir klukkan 19:00 mánudaginn 23. mars þurfa að koma með staðfestingu þess efnis til að geta kosið.

Hér má nálgast umboðsform: Umboð

Scroll to Top