Skip to content

Aðalfundur Spretts 28.mars

Boðað er til aðalfundar Hestamannafélagsins Spretts fyrir starfsárið október 2021 til janúar 2023 þann 28.mars n.k. kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn í Arnarfelli samkomusal félagsins að Hestheimum 14-16 í Kópavogi.

Frekari leiðbeiningar um framkvæmd fundarins og fundargögn verða send út síðar.

Dagskrá fundarins er samkvæmt 10. gr. laga félagsins.

1. Fundarsetning.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á síðasta starfsári.
4. Framlagning reikninga félagsins.
5. Lagabreytingar.
6. Kosning stjórnar skv. 6. gr. laga félagsins.
7. Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara skv. 6. gr. laga félagsins.
8. Kosning í nefndir skv. 17. gr. laga félagsins.
9. Ákvörðun félagsgjalds.
10. Fjárhagsáætlun næsta árs.
11. Önnur mál er félagið varða.


Samkvæmt 6. gr. laga félagsins skal framboði til stjórnarsetu skilað til stjórnar félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Kjörgengir eru allir félagsmenn, 18 ára og eldri, sem eru í skilum með félagsgjöld.
Félagar sem hafa áhuga á að starfa í stjórn eru hvattir til að hafa samband á netfangið sprettur@sprettarar.is  fyrir kl. 16 þann 21.mars. Við lok þess dags verður tilkynnt um hverjir verða í kjöri.

Margrét Tómasdóttir, Kolfinna Guðmundsdóttir og Jenny Erikson hafa allar setið sl tvö ár í stjórn og því þarf að kjósa um 3 stjórnarsæti til tveggja ár. Framangreindir stjórnarmenn bjóða sig allir fram til stjórnarsetu áfram. 

Gunnar Már Þórðarson hefur setið eitt ár í stjórn en ætlar að stíga til hliðar að svo búnu. Því þarf einnig að kjósa einn stjórnarmann til eins árs.

Stjórn hmf Spretts