Skip to content

Aðalfundur Spretts 28.3.´23

Boðað er til aðalfundar Hestamannafélagsins Spretts fyrir starfsárið október 2021 til janúar 2023 þann 28.mars n.k. kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn í Arnarfelli samkomusal félagsins að Hestheimum 14-16 í Kópavogi.

Dagskrá fundarins er samkvæmt 10. gr. laga félagsins.

1. Fundarsetning.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á síðasta starfsári.
4. Framlagning reikninga félagsins.
5. Lagabreytingar.
6. Kosning stjórnar skv. 6. gr. laga félagsins.
7. Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara skv. 6. gr. laga félagsins.
8. Kosning í nefndir skv. 17. gr. laga félagsins.
9. Ákvörðun félagsgjalds.
10. Fjárhagsáætlun næsta árs.
11. Önnur mál er félagið varða.


Samkvæmt 6. gr. laga félagsins skal framboði til stjórnarsetu skilað til stjórnar félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Kjörgengir eru allir félagsmenn, 18 ára og eldri, sem eru í skilum með félagsgjöld.

Margrét Tómasdóttir, Kolfinna Guðmundsdóttir og Jenny Erikson hafa allar setið sl tvö ár í stjórn og því þarf að kjósa um 3 stjórnarsæti til tveggja ár. Framangreindir stjórnarmenn bjóða sig allir fram til stjórnarsetu áfram. 

Gunnar Már Þórðarson og Sigríður Eiríksdóttir hafa sagt stjórnarsætum sínum lausum.

Tveir einstaklingar hafa boðið sig fram í stjórnarsetu, Davíð Áskellsson og Haraldur Pétursson.

Stjórn hmf Spretts