Skip to content

Aðalfundur Spretts 2024

Boðað er til aðalfundar Hestamannafélagsins Spretts fyrir starfsárið 2023 þann 3.apríl n.k. kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn í Arnarfelli samkomusal félagsins að Hestheimum 14-16 í Kópavogi.

Frekari leiðbeiningar um framkvæmd fundarins og fundargögn verða send út síðar.

Dagskrá fundarins er samkvæmt 10. gr. laga félagsins.

1. Fundarsetning.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á síðasta starfsári.
4. Framlagning reikninga félagsins.
5. Lagabreytingar.
6. Kosning stjórnar skv. 6. gr. laga félagsins.
7. Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara skv. 6. gr. laga félagsins.
8. Kosning í nefndir skv. 17. gr. laga félagsins.
9. Ákvörðun félagsgjalds.
10. Fjárhagsáætlun næsta árs.
11. Önnur mál er félagið varða.


Samkvæmt 6. gr. laga félagsins skal framboði til stjórnarsetu skilað til stjórnar félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Kjörgengir eru allir félagsmenn, 18 ára og eldri, sem eru í skilum með félagsgjöld.


Félagar sem hafa áhuga á að starfa í stjórn eru hvattir til að hafa samband á netfangið sprettur@sprettarar.is  fyrir kl. 16 þann 27.mars. Við lok þess dags verður tilkynnt um hverjir verða í kjöri.

Kosið verður til formanns Sprett og einnig eru 4 sæti í stjórn Spretts til kjörs.

Kosið verður einnig um 2 varamenn í stjórn Spretts.

Stjórn hmf. Spretts.