Aðalfundur Spretts fór fram þriðjudaginn 24. mars. Félagsmenn fjölmenntu og var þétt setið í veislusal félagsins. Farið var yfir skýrslu stjórnar sem fylgir hér með í þessari frétt sem og reikninga félagsins. Þrjár nefndir kynntu sín störf og voru það Kvennatöltsnefndin, Sprettskórinn og Hrossaræktarnefndin.
Farið var í gegnum lagabreytingartillögur og samþykktar voru þónokkrar breytingar á lögum félagsins einkum í tenglum við umsóknarferli félagsins um viðurkenningu ÍSÍ til að komast í hóp Fyrirmyndarfélaga ÍSÍ, en sveitarfélög landsins gera í auknum mæli kröfur til íþróttafélaga um að hafa þessa viðurkenningu frá ÍSÍ. Verða uppfærð lög birt á vefsíðu félagsins á næstunni.
Á fundinum var kosið um formann stjórnar, þrjú sæti í stjórn til tveggja ára og eitt sæti í stjórn til eins árs.
Halldór Gunnar Victorsson hlaut kosningu til formanns, Hildigunnur Guðmundsdóttir, Nína María Hauksdóttir og Sævar Kristjánsson fengu kosningu til tveggja ára og Hrafnhildur Blöndahl til eins árs.
Óskum við þeim til hamingju.
Úr stjórn gengu Jónína Björk Vilhjálmsdóttir, Katla Gísladóttir, Sigurbjörn Eiríksson og Davíð Áskelsson og þökkum við þeim kærlega fyrir vel unnin störf fyrir Sprett. Fundargerð aðalfundar verður birt á vefnum á næstu misserum.
Ársreikningur 2025 (hlekkur á pdf)
Skýrsla stjórnar:
Sæl verið þið kæru félagar
Á síðastliðnum 12 mánuðum hefur stjórn, nefndir félagsins, starfsfólk og sjálfboðaliðar lyft grettistaki í rekstri og starfsemi félagsins. Við getum horft stolt til baka á allt sem við höfum áorkað saman undanfarna mánuði. Þetta var ár sem einkenndist af samvinnu, þrautseigju og metnaði, hvort sem tekið var þátt í mótum, komið að viðhaldi á félagssvæðinu okkar, æskulýðsstarfinu, mætt í skemmtilega viðburði eða annað. Formlegir stjórnarfundir hafa verið 26 talsins á þessu starfsári, auk fjölda annara minn funda, allar fundargerðir stjórnar eru aðgengilegar á vefnum og leiðarljós okkar sem stjórnar er gagnsæi, heiðarleiki og fagmennska. Ýmsar nefndir hafa komið inn á stjórnarfundi og kynnt sína starfsemi. Með því höfum við reynt að virkja samtalið og styðja við sem flesta sjálfboðaliða. Stjórn leggur mikla áherslu á að nefndir starfi sjálfstætt en í dag eru starfræktar 22. nefnd í félaginu og fjöldinn allur af viljugum sjálfboðaliðum. Nefndarstarfið í vetur hefur blómstrað í Spretti og óhætt að segja að við séum virkilega rík af áhugasömum félagsmönnum. Mótanefnd hefur verið endurvakin til að vinna að enn skýrara skipulagi mótahalds í Spretti. Æskulýðsstarfið var öflugt eins og áður og var ferðin til Svíþjóðar á Sweden International Horse Show í nóvember hápunktur ársins fyrir unga Sprettara. Í ferðinni var gleðin við völd og var samstaðan hjá Spretturum eftirtektarverð.
Stjórn hefur beðið þrjár nefndir að segja stuttlega frá þeirra störfum eftir að ég hef klárað skýrslu stjórnar. Stjórn Spretts vill með þessu veita nefndum rödd inn á þennan fund til að þið sjáið breiddina sem starfar fyrir félagið. Það er nefnilega alveg ljóst að Stjórn og starfsfólk gerir ekki nema lítinn hluta í því frábæra starfi sem starfrækt er. Í fyrra kynnti Reiðveganefnd, Æskulýðsnefndin og Sjálfbærninefndin en í ár höfum við beðið Kvennatöltsnefnd, Sprettskórinn og Hrossaræktnunarnefndina að kynna sig.
Stefna félagsins
Mig langar að rifja upp með ykkur stefnuna sem við mótuðum í sameiningu árið 2024. Þar kemur fram að hlutverk Spretts er “Að móta félagssvæði, standa vörð um þarfir félagsmanna og efla áhuga á hestum og hestamennsku”. Gildi Spretts voru valin og eru þau Samvinna, Virðing og Öryggi, framtíðarsýnin til 2035 er að Sprettur verði fyrirmynd annarra hestamannafélaga, vagga nýliðunar með öfluga innviði og leiðandi í innanhúsmótahaldi á Íslandi auk þess voru mótaðar fjórar áherslur sem við ætlum að vinna að til að ná framtíðarsýninni. Við höfum unnið ötullega í öllum þeim svo sem höfum við lagað rekstrargrundvöll félagsins, við höfum mótað eftirtektarvert starfsumhverfi, framúrskarandi æskulýðsstarf, virðingu fyrir siðareglum félagsins, sjálfbærni að leiðarljósi, Við höfum lagað samvinnuna við sveitarfélögin svo eitthvað sé nefnt. Ennþá eru mörg mál sem þarf að vinna í, enda nær stefnan til 2035. Nýráðinn framkvæmdarstjóri mun nú halda á stefnunni og glæða hana lífi í sínum störfum fyrir félagið og stjórn.
Rekstur félagsins
Ein af áherslum stjórnar á þessu ári var að halda áfram að vinna með fjárhagslegan stöðugleika félagsins. Áframhaldandi velgengni hefur verið í þessum málum eins og gjaldkeri mun kynna fyrir ykkur á eftir. Við höfum unnið að því að búa til gagnastefnu fyrir félagið og stefnu er varðar efni sem safnast í myndbandsupptökum á félagssvæði Spretts en stefnurnar hafa verið birtar á vefsíðunni okkar. Einnig hefur stjórn verið í umsóknarferli fyrir fyrirmyndarfélag ÍSÍ en lagabreytingar sem kynntar verða á eftir er hluti af því verkefni og byggja tillögurnar á yfirlestri frá lögfræðisvið ÍSÍ eftir að þau rýndu lög Spretts.
Með því að Sprettur verði fyrirmyndarfélag ÍSÍ þá tengjumst við verkferlum sem ÍSÍ hefur mótað fyrir félög sem starfa innan þess “gæðakerfis”, má þá nefna ef upp koma mál hjá Spretti sem t.d. varða einelti eða önnur mál tengt siðareglum og hegðunarviðmiðum Spretts þá getum við komið þeim málum í ferli hjá ÍSÍ í gegnum vottun sem fyrirmyndarfélagið er. Við spáum því að stutt sé í að bæjarfélögin fari fram á þessa vottun til að veita rekstrarstyrki til íþróttafélaga. Vottunin er aðhald á stjórn, hjálpar okkur að hafa hlutina faglega, ferlana í lagi og styður okkur við að reka félag sem fólk treystir sér að vinna hjá og fyrir. Það skiptir gríðarlegu máli að okkur farnist að búa til vinnufrið fyrir sjálfboðaliða svo þeir geti unnið að heilindum fyrir félagið og ásakanir og einelti eigi sér farveg í ferlum hjá ÍSÍ.
En að öðru varðandi reksturinn. Samningnum við Samskip var framlengdur til ágúst 2027 og tryggir hann áframhaldandi öflugt samstarf og stuðning við starfsemi félagsins. Áframhaldandi útleiga hefur verið á mannvirkjum til Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri svo hægt sé að kenna hið eftirsótta nám Reiðmanninn, en síðasta ár var kenndur reiðmaðurinn 1, 2 og 3 í Spretti.
Ráðinn var framkvæmdastjóri sem hóf störf 1 mars síðastliðinn í hálfu starfi til að byrja með en hugmyndin er að hún komi í fullt starf þegar hún nær að losa sig úr núverandi starfi hjá Arion Banka. Ég steig út úr ráðningarferlinu þar sem ég hafði tengsl við umsækjendur sem sóttu um og stjórnarmenn sem ekki tengdust umsækjendum tóku verkefnið að sér. Nýráðinn framkvæmdarstjóri í Spretti heitir Berglind Guðmundsdóttir og heldur hesta á Hamraenda ásamt fjölskyldu sinni. Björn Magnússon, sem flestir þekkja sem Bjössa, var ráðinn sem umsjónaraðili fasteigna hjá Spretti og er einnig í hlutastarfi sem stendur. Þórdís Anna Gylfadóttir er yfirþjálfari félagsinns og er verktaki í 50% starfi fyrir félagið. Bókhaldið er fært hjá verktaka út í bæ. Sprettarinn Matthildur Kristjánsdóttir sér um bókanir og útleigu á veislusalnum okkar.
Viðburðir
Líf og fjör einkenndu veturinn í Samskipahöllinni sem og í Hattarvallahöllinni. Mikið af námskeiðum voru í boði fyrir félagsmenn og kappkostað var við að hafa úrvalið sem breiðast fyrir sem flesta áhugasama félagsmenn. Mikið líf hefur verið í Spretti og ljóst er að ótrúlega öflugt starf á sér stað í grasrótinni hjá okkur. Haldin var uppskeruhátíð fyrir yngri flokka, Kynbótastarfið og fullorðna keppendur, Skötuveisla, Áhugamannadeild, Þorrablót, vetrarleikar, kvennatölt, karlatölt, Dymbilvikusýning, Bláa lóns mótaröð, fræðsluerindi, viðburðir hjá kynbótanefndinni okkar, firmakeppni, kórskemmtun, laugardagsútreiðar eru dæmi um hluti sem eru í gangi hjá okkur en margt fleira mætti nefna.
Mikið hefur verið legið yfir bestun á útleigu á höllunum og okkur finnst okkur hafa tekist betur til í ár en í fyrra, það er að við getum útvegað meiri lausan tíma fyrir félagsmenn og bætt aðgengi. Uppskeruhátíð bæði keppnisknapa og hrossaræktarinnar var á haustmánuðum, þar sem kynbótahross, ræktendur og knapar voru heiðraðir fyrir árangur sinn á árinu. Ræktunarbú Spretts var Efsta-Sel en einnig fékk Sprettarinn og ungmennið Anika Hrund Ómarsdóttir viðurkenningu ungs sýnanda fyrir stórgóðar sýningar á tveim hrossum frá Álfhólum. Á uppskeruhátíðinni var Auður Stefánsdóttir útnefnd Keppnisknapi Spretts 2025, Lárus Sindri Lárusson stigahæsti knapi í opnum flokki karla og voru stigahæstu knapar í áhugamannaflokki Rúnar Freyr og Auður Stefánsdóttir. Samhliða þessu var áhugamannadeildarnefndin og reiðveganefndin heiðruð fyrir framúrskarandi starf á árinu. Sprettarar voru einnig áberandi á Íslandsmóti barna og unglinga og var fjöldi knapa sem tóku þátt. Á mótinu varð Kristín Rut Jónsdóttir fjórfaldur Íslandsmeistari í barnaflokki og Elva Rún Jónsdóttir varð Íslandsmeistari í tölti unglinga.
Samtal LH og Spretts
Á formannafundi Landsambandsins (LH) síðastliðið haust mættu Jónína, Þórdís og Lárus frá Spretti. Sprettur tók þátt í stefnumörkunarvinnunni með LH og jafnframt hélt Formaður Spretts erindi um sjálfboðaliða í hestamennskunni sem birt var á vefnum okkar sprettur.is þann 20. nóvember. 2025. Auk þess kom mótanefnd Spretts með tillögu inn á fundinn að hvatakerfi til að virkja fleiri til að vinna við keppnishald og við skoruðum á LH að taka upp hugmyndina og samtalið á landsvísu.
Bæjarfélögin
Stjórn hefur lagt gríðarlega áherslu á aukið og vandað samtal við bæjarfélögin. Stjórnin fékk það verkefni frá bæjarfélögunum að ná tökum á fjármálum félagsins. Í kjölfarið af því var áformað setjast niður með bæjarstjórunum varðandi áframhaldandi uppbyggingu á félagssvæði Spretts. Eftir síðasta aðalfund, þegar ljóst var að fjármálin voru komin í góðan farveg, settumst Formaður, varaformaður Katla og Sibbi niður með bæjarstjórunum og byrjuðum að teikna upp hugmyndir að frekari innviðauppbyggingu.
Hugmyndirnar sem við fórum með til bæjarfélaganna var í þremur áföngum; félagshesthús, upphitunar/kennsluhöll samtengda Samskipahöllinni og jafnframt óskuðum við eftir stuðningi og fjármagni til að laga alla aðkomu í kringum Samskipahöllina svo hægt væri að koma að veislusalnum án þess að keyra fyrir hross sem eru að ríða í braut, en þær aðstæður skapa mikla hættu.
Bæjarfélögunum líst vel á hugmyndir okkar og eru ánægð með þann góða viðsnúning sem hefur verið á félaginu. Viljayfirlýsingin um fyrsta áfanga verkefnisins sem snýr að félagshesthúsi er klár og var send inn í bæjarráð í vikunni til umfjöllunar. EItt fyrsta verk nýs formanns Spretts verður að hitta bæjarstjórana til að skrifa undir viljayfirlýsinguna og taka þannig verkefnið áfram inn í næstu stjórn. Við sem höfum unnið þetta verkefni leggjum mikla áherslu á að þekkingaryfirfærslan geti orðið sem best svo engir hnökrar verða á. Viljayfirlýsingin verður aðgengileg inn í gögnum bæjarráðs á næstu dögum. Engin staðsetning kemur þar fram eða frekari útfærsla á verkefninu en viljayfirlýsingin snýst eingöngu um fyrsta áfanga sem er félagshesthús. Skv 18 grein laga félagsins þá er stjórn óheimilt að hefja byggingu nema samþykki lögmæts félagsfundar komi til. Þannig viljum við að félagsmenn komi að því hvernig við viljum móta svæðið okkar saman til framtíðar. Mér finnst því ekki ósennilegt að kallað verði til félagsfundar þegar fer að vora til að kynna hugmyndir og útfærslur á verkefninu. Fasi tvö í verkefninu snýr að kennsluhöll/upphitunarhöll við Samskipahöllina og þriðji áfangi snýr að lokafrágangi á landslagi og umgjörð í kringum reiðhöllina okkar.
Varðandi fyrirhugaða uppbyggingu á áhaldahúsi Kópavogsbæjar inn á félagssvæði Spretts þá mótmælti Sprettur harðlega þeim áformum sem leiddi til þess að VSÓ hefur verið fengið til þess að gera greiningarvinnu fyrir Kópavogsbæ þar sem eftirspurn og þarfagreining varðandi hestatengda starfsemi er til skoðunar. Formaður hefur óskað eftir því að Sprettur fái að koma að þessari vinnu hjá VSÓ og þannig gera Sprett aðila að málinu. Það verður verkefni nýrrar stjórnar að fylgja því máli eftir og tryggja að tilliti sé tekið til okkar hestamanna og staðsetning á húsnæðinu sé ekki sett ofan í okkar félagssvæði. Þetta er á allra fyrstu stigum í skipulaginu og ekkert ákveðið ennþá. Við þurfum í sameiningu að standa vörð um þessi mál gagnvart skipulagsmálum hjá bænum. Öll samskipti vegna þessa verða kynnt nýrri stjórn og tryggt góða þekkingaryfirfærslu á þessum málum svo hægt sé að standa sem breiðasta vörð um málið.
Fram á veginn
Við höfum farið í gríðarlega naflaskoðun á félaginu okkar síðustu 24 mánuði og stjórn hefur unnið þétt og vel saman í gegnum þann tíma. Erfiðar ákvarðanir hafa verið teknar og allskonar snúin mál komið upp sem öll hefur verið hægt að leysa. Samstilltur hópur getur áorkað miklu ef við erum sammála um markmið og tilgang vinnunnar.
Samhljómur er um það hvert félagið stefnir og stefnumörkunin varðar veginn okkar fram á við. Við viljum vera fyrirmynd annarra hestamannafélaga eins og stefnan segir og þá þurfum við að vera með góðan rekstrargrundvöll og tryggja vinnufrið fyrir stjórn. Nú er búið er að laga rekstrargrundvöll félagsins er mikilvægt að safna ekki digrum sjóðum frekar láta fjármunina renna til félagsmanna aftur, til að njóta og byggja til framtíðar. Varðandi vinnufrið þá biðla ég til félagsfólk um að horfa sér nær og hjálpast að við að skapa ró í félaginu okkar. Baktal og dylgjur í minn garð eða annarra gerir Sprett ekki að fyrirmynd annarra hestamannafélaga. Ég hef mátt þola mikið af röngum ásökunum sem formaður Spretts og ég biðla til félagsmanna að róa öllum árum að því að nú náist ró í félaginu. Það er best fyrir Sprett, fyrir samstöðuna og framtíðina sem við ætlum að skapa saman í félaginu. Hér eru allir að vinna að heilindum, fyrir félagið í sínum frítíma að reyna að gera sitt besta. Stjórn hefur unnið að heilindum fyrir félagið, reynt að koma vel fram við alla félagsmenn og fyrrverandi starfsfólk, öll mál sem hafa komið upp hafa verið unnin af fagleika, með ráðgjöf til að lenda erfiðum málum í sátt. Við viljum mest af öllu að öllum í félaginu líði vel og finni sig í þeim félagsskap sem Sprettur er og til þess þarf stundum að gera málamiðlanir.
Mikil uppbygging er framundan og bæjarfélögin hafa lagt til hliðar töluvert fé til að styðja okkur í þeirri vegferð. Við þurfum að halda samtalinu góðu og spila rétt úr þeim spilum sem okkur er gefið. i. Landsmót verður haldið á Hólum árið 2026 og nú þegar hefur stjórn tryggt pláss í Skagafirðinum fyrir Sprettara sem keppa á mótinu en félagið fer með stóran hóp knapa á mótið.
Það er mikil vinna að starfa í stjórn Spretts, sér í lagi þegar virk samstarf er í gangi, metnaður og sameiginleg sýn. Það er því mikilvægt að við skiptum þessum verkefnum á milli okkar svo álagið dreifist á milli fólks og sem flest sjónarmið koma að borðinu. Á stjórnarfundi þann 21. mars síðastliðinn ákvað Davíð Áskelsson að segja sæti sínu lausu í stjórn Spretts og verður því kosið um fjögur stjórnarsæti hér á eftir en ekki um þrjú eins og áður var kynnt.
Í lokin vill stjórn þakka Kötlu Gísladóttur, Sigurbirni Eiríkssyni, Davíð Áskelssyni og Lárusi Sindra Lárussyni kærlega fyrir þeirra störf í þágu félagsins með setu sinni í stjórn, framlag þeirra og reynsla hefur verið verðmæt fyrir félagið og þeirra verður saknað. Mig langar að biðja fólk um að klappa fyrir þeirra miklu vinnu sem þau hafa lagt til félagsins.
Stjórnin er stolt af því sem við Sprettarar náðum saman, okkur tókst að efla samstöðu, þjónustu og aðstöðu ásamt því að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá og standa með unga fólkinu okkar. Stjórn félagsins vill þakka öllum sem lögðu hönd á plóg, knöpum, sjálfboðaliðum, foreldrum, styrktaraðilum og starfsfólki fyrir frábær störf á árinu.
Við öll erum sem eitt hjartað í Spretti.
Takk fyrir mig
