Fyrstu vetrarleikar Spretts verða haldnir laugardaginn 22. febrúar. Skráning fer fram í anddyri Reiðhallarinnar milli klukkan 11-12. Hægt er að kaupa hressingu og kaffi meðan á skráningu stendur. Vöfflur verða í boði fyrir þátttekendur meðan á skráningu stendur.
Keppt verður á hefðbundin hátt vetrarleika, uppá vinstri hönd, hægt tölt og svo fegurðargangur.
Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti.
Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr.
Mótið hefst kl 13:00
Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
- Pollar (9 ára og yngri) – teymdir Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
- Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
- Börn – meira keppnisvön (10-13 ára)
- Unglingar – minna keppnisvanir (14-17 ára)
- Unglingar – meira keppnisvanir (14-17 ára)
- Ungmenni- minna keppnisvön (18-21 árs)
- Ungmenni – meira keppnisvön (18-21 árs)
- Konur II – minna keppnisvanar
- Karlar II – minna keppnisvanir
- Heldri menn og konur (60 ára +)
- Konur I – meira keppnisvanar
- Karlar I – meira keppnisvanir
- Opinn flokkur (karlar og konur)
Vetrarleikarnir verða þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót.
Vonumst til að sjá sem flesta!