![](https://sprettur.is/storage/2023/11/hestar-og-skograekt.webp)
Á haustdögum var sett á laggirnar Sjálfbærninefnd Spretts.
Fyrsta verkefni hennar er að bæta ásýnd svæðisins og fegra það. Það verður aðeins gert í góðri samvinnu við sveitarfélög og aðra sem láta sig svæðið varða.
Hugmyndir sem hafa verið til umfjöllunar eru t.d. að óska eftir svæði meðfram reiðleiðum til umráða í nágrenni við félagssvæðið. Þar sjáum við fyrir okkur að útbúa gróðurmanir sem plantað væri í trjám. Með því skapast skjól auk þess sem reiðleiðir verða betur aðskildar frá umferð ökutækja.
Í þessu verkefni sjáum við tækifæri á að nýta sem best það tað sem kemur úr hesthúsum á félagssvæði Spretts en svo það sé hægt þá verður allt tað að vera hreint, allt rusl er bannað og biðjum við félagsmenn sem hafa fengið að losa tað á losunarsvæði okkar að taka það til sín og gæta þess að taðið sé hreint þegar losað er úr hesthúsunum.
![](https://sprettur.is/storage/2023/11/404694720_193001113888439_2381864295206749257_n-768x1024.jpg)
Hjólbörur, plastpokar, járningauppsóp og annað rusl er óheimilt í taðinu skemmir þetta verkefni fyrir okkur.
Með von um gott samstarf félagsmanna í þessu frábæra verkefni okkar..
Sjálfbærninefnd Spretts.