Pollafimi að hefjast

Pollafimi er námskeið fyrir yngstu knapana þar sem verður lögð áhersla á jafnvægi og ásetu með skemmtilegum æfingum meðan þeir eru hringteymdir. Sniðugt er fyrir 2 litla knapa að sameinast um einn hest. Það sem þarf er hestur (getur verið reiðhestur fjölskyldunnar, bara að hann sé þægur og hann hringteymist), hnakkur eða gjörð með handföngum, snúrumúll eða hringtaumsmúll og vaður/langur taumur.
Kennt verður á laugardögum í Húsasmiðjuhöll (28.nóv., 5.des., 12.des. og 19.des.) Tímar í boði milli kl.11-13.
Hver tími er í 30mín og eru 4 saman í hóp. Samtals 4 skipti. Fyrsti tíminn er laugardaginn 28.nóv. Síðasti tíminn er 19.des. Verð er 7000kr. Skráning er opin í abler.
Kennari er Hrafnhildur Blöndahl, leiðbeinandi og tamningakona.
pollar
Scroll to Top