Sumarliðabær 2 ræktunarbú Spretts 2026

Aðalfundur hrossaræktarnefndar Spretts var haldinn 07.11.2026 með góðri dagskrá og áhugaverðri. Fundargerð má finna hér.

Árið 2026 reyndist afar árangursríkt fyrir hrossaræktendur í Spretti. Alls voru 98 hross í eigu Sprettara sýnd í kynbótadómum og 27 þeirra tryggðu sér sæti á Landsmóti og er gaman frá því að segja að 25% þeirra 1.133 hrossa, sem sýnd voru og skipa efstu sæti á topp 10 listum ársins, ræktuð af félagsmönnum Spretts. Það er því óhætt að segja að hross ræktuð af Spretturum séu í allra fremstu röð á landsvísu.

Hilmar Sæmundsson og Daníel Jónsson voru útnefndir Ræktunarmenn ársins fyrir stóðhestinn Dalvar frá Efsta-Seli sem hlaut í aðaleinkunn 9,04 og var hæst dæmda hross Spretts árið 2026.

Sumarliðabær 2 var valið ræktunarbú ársins eftir framúrskarandi árangur hrossa frá búinu, sem mörg hver skipuðu sér í fremstu röð á Landsmótinu á Hólum.

Á fundinum voru veittar viðurkenningar fyrir ræktunarárangur ársins til efstu þriggja hrossa í hverjum flokki, stóðhesta og hryssna. Einnig voru veitt verðlaun fyrir þau hross sem hlutu heiðursverðlaun og fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi ræktuð af Sprettsfélaga.
Hvatningarverðlaun voru veitt til ungs sýnanda og var það í ár Hekla Rán Hannesdóttir sem hlaut þau fyrir glæsilega sýningu á hryssunni Þórkötlu frá Hamarsey.

Framundan er öflugt starf nefndarinnar með nýjum samstarfsverkefnum, námskeiðum og undirbúningi að nýrri unghestakeppni í samstarfi við önnur hestamannafélög.

Scroll to Top