Tveir ungir Sprettarar eru tilnefndir til efnilegasta knapa ársins 2026. Það eru þær Elva Rún Jónsdóttir og Guðný Dís Jónsdóttir sem hafa verið tilnefndar til verðlaunanna Efnilegasti knapi ársins 2026 hjá Landssambandi hestamannafélaga (LH).
Alls eru fimm knapar tilnefndir í þessum flokki og því sérstaklega ánægjulegt að tveir þeirra komi úr röðum Spretts.
Báðar hafa þær sýnt mikinn metnað og dugnað í sinni hestamennsku og er tilnefningin glæsileg viðurkenning fyrir þær.
Elva Rún sigraði einstaklingskeppnina í meistaradeild ungmenna, sigraði slaktaumatölt ungmenna á Reykjavíkurmeistaramóti ásamt því að vera í 2.sæti á Landsmóti í ungmennaflokki.
Guðný Dís sigraði gæðingaskeið í ungmennaflokki á Reykjavíkurmóti og var einnig Íslandsmeistari í greininni ásamt því að vera efst á stöðulista.
Knapaverðlaunin verða afhent á Uppskeruhátíð hestafólks í Gamla bíói laugardaginn 21. nóvember næstkomandi, þar sem árangur knapa á keppnisárinu verður heiðraður.
Innilega til hamingju Elva Rún og Guðný Dís með þessar tilnefningar!


