Opið verður fyrir umsóknir í Afrekssjóð lýðheilsu- og íþróttanefndar Kópavogs fyrir árið 2027 1.-30.nóvember 2026.
Meðfylgjandi er reglugerð sjóðsins.
Markmið sjóðsins eru:
-
Að veita afreksíþróttafólki í íþróttafélögum í Kópavogi fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og þannig búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína.
-
Að veita afreksíþróttafólki styrk sem á lögheimili í Kópavogi og getur ekki stundað sína íþrótt í bæjarfélaginu.
Allar umsóknir skal senda í gegnum þjónustugátt Kópavogs á www.kopavogur.is. Eingöngu er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Opið verður fyrir umsóknir frá 1. – 30. nóvember 2026.
