Kennd verða öll stig verklegra Knapamerkja í Spretti í haust og vetur, ef skráning næst. Miðað er við 3-4 nemendur í hóp. Hægt er að nýta frístundastyrkinn við greiðslu á öllum stigum KM. Ef eldri en 21 árs hafa áhuga á að sækja námskeið í Knapamerkjum vinsamlegast hafið samband við thordis(hja)sprettur.is. Skráning er opin og stendur til 20.nóv. Hér er beinn hlekkur á skráningu á abler.io – https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NzAxMzA=?
KM1:
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum, ýmist í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll, tímasetning ca kl.16:30 (skýrist nánar við skráningu og fjölda) Námskeiðið hefst 23.nóv og lýkur 21.des. Samtals 10 tímar. Verð fyrir yngri flokka er 37.000kr. Kennari er Þórdís Gylfadóttir.
KM2:
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum, ýmist í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll, tímasetning ca kl.17:15 (skýrist nánar við skráningu og fjölda) Námskeiðið hefst 23.nóv og lýkur 21.des. Samtals 14 tímar. Verð fyrir yngri flokka er 48.000kr. Kennari er Þórdís Gylfadóttir.
KM3:
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum, ýmist í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll, tímasetning ca kl.18:00 (skýrist nánar við skráningu og fjölda) Námskeiðið hefst 23.nóv og lýkur 27.jan. Samtals 18 tímar. Verð fyrir yngri flokka er 63.000kr. Kennari er Þórdís Gylfadóttir.
KM4:
Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum, ýmis í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll. Tímasetningar ca. milli kl.16-18 (fer eftir skráningu og fjölda). Námskeiðið hefst 23.nóv og lýkur 2.febrúar. Samtals 22 tímar. Verð fyrir yngri flokka er 72.000kr. Kennari er Teresa Evertsdóttir.
KM5:
Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum, ýmis í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll. Tímasetningar ca. milli kl.16-18 (fer eftir skráningu og fjölda). Námskeiðið hefst 23.nóv og lýkur 18.febrúar. Samtals 26 tímar. Verð fyrir yngri flokka er 88.000kr. Kennari er Teresa Evertsdóttir.
