Reiðkennarinn Árný Oddbjörg býður upp á reiðnámskeið í haust, október til nóvember, námskeiðið hefst 21.október og lýkur 18.nóvember, samtals 5 skipti.
Skráning opnar kl.12:00 mánudaginn 21.september. Skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur.
Námskeiðið verður kennt á miðvikudögum milli kl.15:00-20:00. Kennt verður í Samskipahöllinni. Kenndir eru 30mín einkatímar.
Verð fyrir fullorðinn er 44.500kr og yngri flokka er 34.500kr.
Allar nánari upplýsingar gefur Þórdís,thordis(hja)sprettur.is
