Undanfarið hefur verið unnið að ýmsum umbótaverkefnum á félagssvæði Spretts með þátttöku sjálfboðaliða og góðra samstarfsaðila.
Verk sem er í vinnslu er til að mynda stétt sem verið er að steypa fyrir framan veislusalinn þar sem sjálfboðaliðar ásamt starfsfólki hefur lagt sitt af mörkum við að bæta aðkomu að salnum, penslum og smíðadóti verið hefur einnig vippað fram þar sem meðal annars hefur verið flikkað upp á reiðgerði, en þar sem annarsstaðar eru þó nokkur handtök eftir enn og handlagnir mega gjarnan gefa sig fram.
Góðir gestir, málarar á mála hjá Kópavogsbæ, mættu síðan í vikunni til að fríska upp á félagshesthúsið að innan og síðan styttist í að gúmmímottur verði komnar á steypuna í anddyri rennunnar inn í Samskipahöll.
Verkefnalistinn er þó langt í frá að verða búinn og áhugasamir hvattir til að senda línu á berglind(hja)sprettur.is ef vilji er fyrir því að leggja plóg á hönd. Með sameiginlegu átaki getum við haldið svæðinu okkar betur við og snyrtilegu.
Sprettur vill færa öllum þeim sem hafa komið að þessum sem og öðrum verkefnum bestu þakkir fyrir framlag sitt.


