Boðið verður upp á námskeið með reiðkennaranum Þorvaldi Árna Þorvaldssyni frá október til desember 2026. Kennt verður á miðvikudögum í Húsasmiðjuhöll. Tímasetningar í boði milli kl.14-20.
Markmið og yfirskrift námskeiðsins er undirbúningur fyrir keppni og uppbygging keppnishests.
Námskeiðið hefst 7.okt. á bóklegum tíma og sýnikennslu í Húsasmiðjuhöll. Verklegir einkatímar hefjast 14.okt. Kennt er í 30mín einkatímum. Samtals 10 einkatímar á nemanda. Námskeiðinu lýkur 16.des. Einungis 12 nemendur. Í heildina er námskeiðið 11 skipti, 1 bóklegur/sýnikennsla + 10 einkatímar.
Verð er 140.000þús. Hægt er að skipta greiðslum og hægt er að sækja um styrki til stéttarfélaga.
Skráning á námskeiðið fer fram á abler.io og opnar 18.sept kl.12:00. Námskeiðið mun heita í abler „Reiðnámskeið með Þorvaldi Árna“
Skuldlausir félagsmenn hestamannafélagsins Spretts ganga fyrir við skráningu á námskeið hjá hestamannafélaginu Spretti.
