Hestafjör ungra Sprettara

Við efnum til skemmtilegra félagslegra hittinga, stuð og stemming án hesta. Við ætlum að hittast annanhvern fimmtudag í haust ýmist í reiðhöllum eða í veislusalnum í Samskipahöllinni. Skipt verður í hópa eftir aldri, 8-13 ára saman (elstu pollarnir og barnaflokkur) og 14-17 ára saman (unglingaflokkur). Í einhver skipti verða þó báðir hópar saman.
Verð er 15.000kr. Skráning fer fram í abler.io og opnar föstudaginn 18.sept. kl.12:00. Kennari/umsjónaraðili er Þórdís Anna Gylfadóttir.

OKTÓBER
8.okt kl. 18:00 – Húsasmiðjuhöll
Þrífum reiðtygin okkar saman. Stutt fræðsla í upphafi frá Guðmundi í Ástund.
Efni (sápa og leðurfeiti) í boði fyrir alla. Hver og einn mætir með eigin tuskur og handklæði.

20.okt – Húsasmiðjuhöll (ath! Þriðjudagur)
Ólympíuleikar ungra Sprettara í reiðhöllinni. Vegleg verðlaun í boði.

NÓVEMBER
5.nóv – veislusalurinn í Samskipahöllinni (tímasetning auglýst síðar)
Uppskeruhátíð ungra Sprettara (opið öllum ungum Spretturum óháð skráningu á námskeiðið).

19.nóv – veislusalurinn í Samskipahöllinni
Pizzakvöld ungra Sprettara – þar sem hver gerir sína eigin pizzu (allt hráefni innifalið). Spilað og spjallað.  Ís-bar í eftirrétt.

DESEMBER
3.des – Samskipahöllin
Hestaföndur og hobby horse keppni. Hver og einn kemur með sinn kúst/skaft. Föndur og efni innifalið.

17.des – veislusalurinn í Samskipahöllinni
Litlu-jólin, pakkaleikur, jólamynd + kakó + piparkökuskreytingar.
Hver og einn kemur með sinn eigin lítinn pakka. Allar veitingar innifaldar.

Scroll to Top