Unnið verður með að lesa atferli hestsins, skilja betur hvað liggur að baki viðbrögðum hans og bregðast við á skýran og sanngjarnan hátt. Áhersla verður lögð á jákvæða styrkingu og að taka mið af atferli, líðan og viðbrögðum hvers hests.
Einnig verður unnið með viðbrögð knapans, sjálfstraust og óöryggi og hvernig eigin líðan og viðbrögð geta haft áhrif á samskiptin við hestinn. Flest lendum við einhvern tímann á þeim stað í hestamennskunni að þurfa á stuðningi að halda. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að mæta hverjum þátttakanda þar sem hann er staddur og veita stuðning við að takast á við óöryggi, byggja upp sjálfstraust og stíga út fyrir þægindarammann í hæfilegum skrefum. Markmiðið er að byggja upp traust og öryggi svo hestur og manneskja geti orðið öruggari saman.
Þátttakendur mæta með eigin hest og unnið verður með sama hestinn út námskeiðið, þannig að hægt sé að byggja markvisst ofan á samskipti, traust og öryggi hjá hverju pari.
Námskeiðið hefst á fyrirlestri þann 8.okt og kynningu þar sem farið verður yfir grunnatriði í atferli hesta, samskiptum og nálgun námskeiðsins. Að sex vikum loknum verður lokafundur þar sem farið verður yfir helstu atriði námskeiðsins og næstu skref.
