Róbert Petersen reiðkennari býður upp á frumtamningarnámskeið í Spretti í haust. Námskeiðið hefst mánudaginn 5. október 2026.
Fyrsti tíminn er bóklegur tími, sem haldinn er á 2.hæð Samskipahallarinnar, þar sem allir hóparnir mæta á saman.
Fyrsti tíminn er bóklegur tími, sem haldinn er á 2.hæð Samskipahallarinnar, þar sem allir hóparnir mæta á saman.
Verklegir tímar hefjast svo þriðjudaginn 6.október og þá kemur hver þátttakandi með sitt trippi. Í boði verða tímasetningar kl.17-18, 18-19 og 19-20.
Á námskeiðinu er farið í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s:
-Atferli hestsins
-Leiðtogahlutverk
-Fortamning á trippi
-Undirbúningur fyrir frumtamningu
-Frumtamning
Bóklegir tímar: 1
Verklegir tímar: 11
Tímar: 3x í viku – mánudagar, þriðjudagar og fimmtudagar í 4 vikur
Staðsetning: Samskipahöllin, rennan/anddyri og hólf 1
Verð: 68.000.-
Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12-16 þátttakendur (3-4 hópar).
Bóklegur tími verður sameiginlegur fyrir allan hópinn og verður haldinn mánudaginn 5.október á 2.hæð Samskipahallarinnar, allir hóparnir mæta á sama tíma í bóklegan tíma.
Verkleg kennsla verður í Samskipahöllinni, byrjað verður frammi í rennunni og svo færist námskeiðið inn í reiðhöllina, hólf 1. Mælt er með því að nemendur fylgist með öðrum og læri þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
Námskeiðið er opið fyrir alla félaga í hestamannafélögum en Sprettsfélagar ganga fyrir. Skráning er opin og fer fram á abler.io.
Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Þórdísi – thordis(hja)sprettur.is
