Norðurlandamótið í hestaíþróttum fer fram á Margaretehof í Svíþjóð dagana 4.-9.ágúst. Í landsliðshópnum eru þrír ungir Sprettarar en það eru þær Hekla Rán, Elva Rún og Guðný Dís.
Hekla Rán Hannesdóttir (Spretti) og Tindur frá Árdal. Hekla og Tindur þekkjast vel og hafa náð góðum árangri í keppni saman og voru meðal annars í B-úrslitum í B-flokki ungmenna á LM. Keppa í B-flokki ungmenna, T1 og V1.
Elva Rún Jónsdóttir (Spretti) og Kvasir frá Steinnesi. Elva Rún er ríkjandi Íslandsmeistari í T1 unglinga og hefur náð frábærum árangri undanfarin ár. Keppa í T1 og V1.
Guðný Dís Jónsdóttir (Spretti) og Laki fran Adalgården. Ríkjandi Íslandsmeistari í gæðingaskeiði ungmenna og hefur verið fyrnasterk í ýmsum greinum undanfarin ár. Keppa í T1 og V1.
Það verður spennandi að fylgjast með mótinu og ungu Spretturunum okkar en það verður sýnt í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV ásamt því að mótinu verður gerð góð skil á samfélagsmiðlum Landssambandsins.
Við óskum landsliðsknöpum og teyminu góðs gengis.
Meira inn á vef LH, lhhestar.is – https://www.lh.is/landsli-islands-a-norurlandamot-2026
