Kæru félagar í Spretti.
Næsta mót á félagssvæði okkar er Metamótið sem haldið verður helgina 4.-6. september næstkomandi.
Það eru þó nokkur handtökin sem tengjast undirbúningi og framkvæmd móta sem þessa – við óskum því eftir öflugu fólki sem er til í að koma að undirbúningi og framkvæmd skemmtilegs móts með öðru öflugu og skemmtilegu fólki – mega senda upplýsingar um nafn og símanúmer á motaskraning(hja)sprettur.is
Margar hendur vinna létt verk!
