Sprettarar stóðu sig vel á Íslandsmóti ungmenna og fullorðinna

Íslandsmót fullorðinna og ungmenna fór fram á Sörlastöðum 16.-21.júní sl. Á mótinu tóku þátt þó nokkrir ungir Sprettarar, í ungmennaflokki en það voru þau Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir, Elva Rún Jónsdóttir, Guðný Dís Jónsdóttir, Hekla Rán Hannesdóttir, Herdís Björg Jóhannsdóttir, Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson og Þórdís Agla Jóhannsdóttir.

Guðný Dís Jónsdóttir varð Íslandsmeistari í gæðingaskeiði ungmenna á Erlu frá Feti.
Elva Rún Jónsdóttir varð í 2.sæti í fjórgangi ungmenna á Goða frá Garðabæ, í 3.sæti í slaktaumatölti ungmenna á Júpíter frá Votumýri 2 og jafnframt í 4.sæti í gæðingaskeiði ungmenna á Ásu frá Fremri-Gufudal.
Herdís Björk Jóhannsdóttir varð í 2.sæti í fimmgangi ungmenna á Skorra frá Vöðlum,  6.sæti í fjórgangi ungmenna á Sverði frá Vöðlum og í  8.sæti í gæðingaskeiði ungmenna á Urlu frá Pulu.
Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson varð í 6.sæti í gæðingaskeiði ungmenna á Sælu frá Hemlu II og jafnframt í 6.sæti í 150m skeiði og 8.sæti í 100m skeiði.
Hekla Rán Hannesdóttir varð í 7.sæti í tölti ungmenna á Auði frá Hamarsey.
Þórdís Agla varð í 9.sæti í slaktaumatölti ungmenna á Laxnes frá Klauf

Í flokki fullorðinna tóku þátt þau Hafþór Hreiðar Birgisson, Herdís Lilja Björnsdóttir og Hermann Arason fyrir hönd Spretts.
Hafþór Hreiðar Birgisson varð í 9.sæti í gæðingaskeiði á Möndli frá Halakoti.
Hermann Arason varð í 14.sæti í tölti á Náttrúnu Ýr frá Herríðarhóli og 19.sæti í gæðingaskeiði á Þotu frá Vindási.
Herdís Lilja Björnsdóttir varð í 18.sæti í tölti á Garp frá Seljabrekku.

Scroll to Top