Undirbúningur fyrir knapa sem fara fyrir Sprett á Landsmót!

Undirbúningur fyrir knapa sem fara fyrir Sprett á Landsmót!
Námskeiðið er hugsað sem lokaundirbúningur fyrir Sprettara sem keppa á Landsmóti hestamanna á Hólum.
Kennt verður miðvikudaginn 24.júní og mánudaginn 29.júní. Hægt verður að vera inni og/eða úti á velli. Námskeiðið samanstendur af tveimur 30 mínútna einkatímum. Tímasetningar einkatíma á bilinu 15:00-20:00.
Skráning fer fram á abler.io og opnar kl.21:00 mánudaginn 22.júní.
Kennari námskeiðsins er Ylfa Guðrún Svafarsdóttir
Verð: 15.000kr
Scroll to Top