Landsmótsfundur yngri flokka Spretts mánudaginn 22. júní

Mánudaginn 22. júní verður knapafundur fyrir Landsmótsfara í yngri flokkum Spretts haldinn í veislusalnum í Samskipahöllinni. Fundurinn hefst kl.18:00 og er gert ráð fyrir ca. 30 mín.

Fundurinn er ætlaður fyrir þá keppendur í barna-, unglinga- og ungmennaflokki sem hafa unnið sér inn þátttökurétt á Landsmóti hestamanna 2026. Foreldrar eru velkomnir með.

Rætt verður stuttlega um keppni á landsmóti,  farið verður yfir félagsbúning Spretts og sitthvað fleira.

 

 

Scroll to Top