Kæru félagsmenn
Eins og flestir þekkja þá hafa félagsmenn í Spretti aðgang að opnu gjaldfrjálsu kerrustæði við Markarveg.
Sprettur er ekki með umsjón stæðisins en það er á valdi þeirra sem nýta það að gera það á snyrtilegan og viðeigandi máta.
Við hvetjum því félagsmenn til að ganga vel um kerrustæðið, líkt og almennt á okkar félagssvæði.
