Einkatímar með Guðrúnu Margréti

Sprettarinn og reiðkennarinn Guðrún Margrét Valsteinsdóttir býður upp á tvo einkatíma. Námskeiðið/einkatímarnir eru opnir öllum, frá byrjendum til reynslubolta, keppnisknöpum sem stefna á mót og þeirra sem vilja gera reiðhestinn sinn betri og auka skilning milli knapa og hests.

Kennt verður inni í Húsasmiðjuhöll, en einnig er í boði að fara út á völl ef óskað er eftir.

Námskeiðið verður kennt miðvikudagana 27.maí og 3.júní. Kennt verður í Húsasmiðjuhöll. 30mín einkatímar.

Verð fyrir fullorðna er 15.500kr
Verð fyrir yngri flokka er 11.000kr

Skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur og opnar fimmtudaginn 21.maí kl.12:00.

Scroll to Top