Opið íþróttamót Sprett verður haldið daganna 20. -24. maí á Samskipavelli Spretts.
Samkvæmt Sigga Stormi kemur sumarið 21. maí, því er spáð góðu veðri.
Opnað hefur verið fyrir skráningar á Sportfeng og skráning í barna- og unglingaflokki 6500 kr. og í öðrum flokkum 8000 kr.
Sprettur áskilur sér rétt að fella niður flokka þar sem ekki eru fleiri en sex keppendur skráðir.
Skráningarfrestur er til 13. maí.
Skráning frá 14.maí til 17. maí eru skráningargjöld 15.000 kr í öllum flokkum.
Keppt verður í
T7: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur og 1. flokkur
T3: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
T1: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
T4: Unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
T2: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
V5: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur og 2. flokkur
V2: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
V1: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
F2: Unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
F1: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
Gæðingaskeið: Ungmennaflokkur, 1.flokkur og meistaraflokkur
100 m skeið: Ungmennaflokkur og opinn flokkur
