Reiðkennarinn og keppnisknapinn Randi Holaker býður upp á einkatíma á fimmtudögum. Kennt er í 40mín í Samskipahöll eða úti á velli ef nemendur óska eftir. Námskeiðið hefst 14.maí og lýkur 4.júní. Samtals 4 skipti.
Randi er afar reynslumikill reiðkennari og dómari, hefur m.a. verið yfirdómari Gæðingalistar í Meistaradeildinni undanfarin ár. Einnig hefur hún látið til sín taka í keppnum og ræktun ásamt því að hafa verið umsjónarmaður Reiðmannsins við LBHI til fjölda ára.
Einkatímar hjá Randi henta breiðum hópi knapa, hvort sem ungum Spretturum eða fullorðnum, hvort sem markmkiðið er að undirbúa sig fyrir keppni eða einfaldlega að vilja læra meira og bæta sig.
Skráning opnar miðvikudaginn 6.maí kl.12:00 á abler.io/shop/hfsprettur
