Halldór Victorsson formaður Spretts, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um byggingu félagshesthúss og skólastofu á félagssvæði Spretts.
Með uppbyggingu kennslu- og félagshesthúss verði til vettvangur sem m.a. getur boðið upp á þjónustu fyrir breiðari hóp með áherslu á félagslegan stuðning og sjúkraþjálfun með aðstoð hesta. Þetta er í takt við alþjóðlega þróun í hestatengdri heilsueflingu og styður við nýliðun í hestamennsku, aukna þátttöku og aðgengi að öruggri og faglegri aðstöðu. Þá er hugmynd um að grunnskólanemendum í sveitarfélögunum verði gert kleift að sækja reiðkennslu sem hluta af vali í grunnskóla á skólatíma.
Fram að Sprettur hafi þá sýn að gera hestamennsku og samveru við hesta aðgengilegri fyrir breiðari hóp í samfélaginu en þekkist í dag með áherslu á heilsueflingu, félagslegan stuðning og menntun sem jafnframt styður við markmið sveitarfélaganna tveggja um lýðheilsu, vellíðan og sjálfbærni.
Með viljayfirlýsingunni lýsa Garðabær og Kópavogur því yfir að sveitarfélögin hafi vilja til að leggja hestamannafélaginu til styrk í verkefnið. Gerður verður sérstakur samningur um framkvæmdina og starfshópur settur á laggirnar.
