Fræðsludagur Töltgrúppu Spretts og Töltskvísa Sleipnis

Sumardaginn fyrsta, 23. apríl, ætla töltslaufuhópar Spretts og Sleipnis, að halda skemmtilegan æfinga- og fræðsludag.

Hóparnir vilja þess vegna bjóða öllum sem hafa áhuga á að sjá hvað hóparnir hafa verið að gera í vetur og fræðast aðeins meira að koma og eyða einu stuttu kvöldi með okkur.

Hóparnir taka létta opna æfingu og enda a að sýna atriði sín sem hóparnir hafa æft af miklum krafti í vetur.

Dagskráin er eftirfarandi:
Kl. 18:00 – Töltgrúppa Spretts verður með létta æfingu og endar á að sýna atriði sitt.
Kl. 18:45 – Töltskvísur Sleipnis verða með létta æfingu og enda a að sýna atriði sitt.
Kl. 19:30 – Árný Oddbjōrg Oddsdóttir og Guðrún Margrét Valsteinsdottir verða með sýnikennslu þar sem þær fara í atriði sem gott er að eiga í verkfærakistunni sem og eitthvað meira skemmtilegt.

Áætluð sýningarlok eru kl. 20:15.

Engin sjoppa verður a staðnum en fólki er velkomið að taka með sér nesti.

Gengið verður inn a gaflinum við stúkuna, ekki inn i veislusalinn.

Verið velkomin og hlökkum til að sjá ykkur.

Scroll to Top